Rooney: Sigurinn gegn QPR róaði alla niður

Wayne Rooney fagnar með Ander Herrera.
Wayne Rooney fagnar með Ander Herrera. AFP

Wayne Roony var glaður í bragði í viðtali fyrir leikinn gegn Leicester sem hefst núna kl. 12.30 en Rooney segir stemninguna á æfingasvæðinu vera góða.

„Sigurinn gegn QPR róaði alla niður. Við erum enn að aðlagast breytingum en það er létt yfir mönnum á æfingasvæðinu,“ sagði Rooney sem er ánægður með nýtt hlutverk sitt hjá United bæði með það að spila í nýrri stöðu sem og að vera núna aðalfyrirliði liðsins.

„Ég er ekki sami leikmaður og ég var. Ég hef þróað leik minn og er ánægður með það að spila úti á kanti. Ég gert unnið mína vinnu þar sem og  í sóknarleiknum. Það veltur í raun á stöðunni í hverjum leik fyrir sig hvað þjálfarainn vill að ég geri,“ sagði Rooney sem hefur fulla trú á sér sem fyrirliða.

„Ég hef alltaf trúað því að ég gæti orðið fyrirliði. Ég tel mig hafa burðina í það. Ég er tilbúinn í þetta hlutverk og ég nýt þess að hafa þessa ábyrgð,“ sagði Rooney.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert