Gylfi skorar gegn Everton

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði rétt í þessu fyrir Swansea gegn Everton í enska deildabikarnum og kom liði sínu í 2:0 á 65. mínútu leiksins.

Þetta er annað mark Gylfa á tímabilinu en hann skoraði í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar, gegn Manchester Untied. Nathan Dyer skoraði fyrra mark Swansea á 29. mínútu og staðan er góð hjá Gylfa og félögum.

Arsenal er að tapa 1:2 fyrir Southampton en Liverpool og Middlesbrough eru jöfn, 1:1, en margir leikir fara fram í deildabikarnum í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert