Lánssamningur Lampards framlengdur

Frank Lampard.
Frank Lampard. AFP

Lánssamningur Frank Lampards frá New York FC til Manchester City hefur verið framlengdur að því er Sky Sports greinir frá.

Lampard mun vera í herbúðum City fram til byrjun febrúar sem þýðir að hann getur spilað með Manchester City þegar það mætir Chelsea á Stamford Bridge þann 31. janúar.

Lampard skoraði jöfnunarmark Manchester City í leiknum gegn Chelsea á sunnudaginn en leikmaðurinn yfirgaf herbúðir Chelsea í sumar eftir að hafa spilað með Lundúnaliðinu frá árinu 2001.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert