Margir meiddir hjá City

Sergio Agüero.
Sergio Agüero. AFP

Manuel Pellegrini knattspyrnustjóri Manchester City segir að fimm af sínum leikmönnum missi af leiknum gegn Sheffield Wednesday í ensku deildabikarkeppninni í knattspyrnu annað kvöld vegna meiðsla.

Pellegrini tjáði fréttamönnum í dag að þeir Sergio Agüero, David Silva, Samir Nasri, Fernando og Stevan Jovetic missi allir af leiknum sökum meiðsla og þá taki bakvörðurinn Pablo Zabaleta út leikbann

Manchester City á titil að verja í keppninni en liðið hafði betur í úrslitaleik gegn Sunderland í marsmánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert