Veikindi í leikmannahópi Newcastle

Leikmenn Newcastle fagna marki Papiss Cisse um síðustu helgi.
Leikmenn Newcastle fagna marki Papiss Cisse um síðustu helgi. AFP

Veikindi herja á leikmannahóp Newcastle og nú er ljóst að nokkrir þeirra missa af leiknum á móti Crystal Palace í deildabikarnum sem fram fer í London annað kvöld.

Framherjinn Papiss Cisse, sem skoraði bæði mörkin í jafnteflisleiknum á móti Hull um nýliðna helgi, markvörðurinn Tim Krul og framherjinn Yoan Gouffran verða allir fjarri góðu gamni annað kvöld vegna veikinda. Þá er hollenski framherjinn Siem de Jong úr leik vegna meiðsla fram í janúar.

Illa hefur gengið hjá Newcastle í upphafi leiktíðar og mikil pressa er komin á Alan Pardew knattspyrnustjóra liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert