Sturridge ekki með í Sviss

Daniel Sturridge.
Daniel Sturridge. AFP

Sóknarmaðurinn Daniel Sturridge hefur enn ekki jafnað sig af meiðslum og er ekki í hópi Liverpool sem fór til Sviss í dag vegna leiksins gegn Basel í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu sem þar fer  fram annað kvöld.

Þetta  verður sjötti leikurinn sem Sturridge missir af frá því hann meiddist í læri á landsliðsæfingu í byrjun mánaðarins. Vonir eru bundnar við að hann verði tilbúinn fyrir leik Liverpool gegn WBA í úrvalsdeildinni næsta laugardag.

Miðvörðurinn Mamadou Sakho er heldur ekki í hópnum sem fór til Sviss. Hann mátti búast við refsingu í kjölfar þess að Sakho yfirgaf Anfield fyrir leikinn gegn Everton á laugardaginn, þegar honum var tilkynnt að hann væri ekki í leikmannhópnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert