Juan Mata leikmaður Manchester United segir að United verði að byggja ofan á síðustu tvo sigra sína og bæta þeim þriðja við þegar liðið sækir WBA heim í lokaleik 8. umferðar í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.
United hefur unnið tvo síðustu leiki sína gegn West Ham og Everton og með sigri annað kvöld kemst liðið upp í fjórða sæti deildarinnar.
„Vonandi tekst okkur að ná þremur stigum á móti WBA en það verður erfiður leikur á erfiðum útivelli. Lið okkar hefur sýnt mikinn karakter og sigurvilja í síðustu leikjum og þannig verður það að vera áfram,“ segir Mata, sem hefur verið í byrjunarliði United í síðustu tveimur leikjum í fjarveru Waynes Rooneys en Rooney tekur út sinn þriðja og síðasta leik í banni annað kvöld.