Vill endurgreiða stuðningsmönnunum

Vito Mannone.
Vito Mannone. AFP

Vito Mannone markvörður Sunderland ætlar að vinna í því að fá liðsfélaga sína til að endurgreiða þeim stuðningsmönnum sem mættu á leik liðsins gegn Southampton á St. Marys í gær.

Mannone varð að gera sér að góðu að hirða boltann átta sinnum úr neti sínu en Sunderland tapaði 8:0. Þetta var stærsta tap Sunderland í 32 ár og um leið stærsti deildarsigur Southampton frá upphafi.

„Ég ætla að ræða við liðsfélaga mína um það hvort það sé mögulegt að við endurgreiðum þeim stuðningsmönnum okkar sem gerðu sér ferð á leikinn og keyptu miða,“ segir Mannone en um 2.500 stuðningsmenn Sunderland mættu á leikinn og lögðu á sig um 500 kílómetra ferðlag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert