Birmingham rak Clark

Lee Clark.
Lee Clark. Ljósmynd/bcfc.com

Enska B-deildarliðið Birmingham rak í dag knattspyrnustjórann Lee Clark úr starfi vegna slaks árangur liðsins á tímabilinu.

Birmingham hefur aðeins unnið tvo af 12 leikjum sínum í deildinni og er í 21. sæti, einu stigi frá fallsæti. Birmingham tapaði fyrir Bolton, 1:0, á laugardaginn og það reyndist síðasti leikur liðsins undir stjórn Clark sem tók við liðinu í júní 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert