Gerrard hafnaði Real Madrid

Steven Gerrard er klár í slaginn fyrir leikinn mikilvæga annað …
Steven Gerrard er klár í slaginn fyrir leikinn mikilvæga annað kvöld. AFP

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, greindi frá því fyrir stórleikinn við Real Madrid í Meistaradeild Evrópu annað kvöld að forráðamenn Real hefðu oftar en einu sinni falast eftir því að fá miðjumanninn í sínar raðir.

Gerrard er fæddur og uppalinn Liverpool-maður og hefur alla sína tíð leikið fyrir félagið, þrátt fyrir möguleika á að breyta til.

„Það er mikið hrós að vera orðaður við risastórt félag eins og Madrid. Ég hef fengið nokkur tækifæri til þess á ferlinum að ganga til liðs við Real Madrid, en stóðst freistinguna til að vera áfram hjá mínu heimafélagi,“ sagði Gerrard.

„Ég á kannski eftir að sjá eftir því að hafa ekki prófað aðra hluti, eftir að ferlinum lýkur, en ég hefði séð meira eftir því að fara frá Liverpool, félaginu sem ég elska. Real Madrid er einstakt félag en fyrir mér er Liverpool númer eitt,“ sagði Gerrard.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert