Hörmuleg markvarsla Kane - myndskeið

Harry Kane missir boltann í markið.
Harry Kane missir boltann í markið. AFP

Harry Kane var heldur betur í sviðsljósinu í gærkvöld þegar Tottenham vann Asteras Tripolis frá Grikklandi, 5:1, í Evrópudeild UEFA í knattspyrnu. Kane skoraði þrennu og fór síðan í mark Tottenham undir lokin en sýndi ekki beint sannfærandi tilþrif þeim megin á vellinum.

Kane tók við markmannshönskunum á 89. mínútu þegar Hugo Lloris markvörður Tottenham var rekinn af velli. Grikkirnir fengu aukaspyrnu, boltinn fór beint á Kane sem missti hann samt framhjá sér og í markið.

Markmannstilþrifin hjá Kane má sjá á meðfylgjandi myndskeiði:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert