Rooney verður með gegn City

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Wayne Rooney fyrirliði Manchester United býst fastlega við því að verða klár í slaginn á sunnudaginn þegar Manchester-liðin, United og City eigast við í ensku úrvalsdeildinni á Ethiad vellinum.

Rooney, sem hefur lokið við að aflána þriggja leikja bann, hefur átt við meiðsli að stríða í fæti en hann hefur æft án vandræða síðustu tvo daga svo reiknað er með að hann verði með í grannaslagnum.

Kólumbíski framherjinn Radamel Falcao verður hins vegar ekki með frekar en í leiknum á móti Chelsea. Hann gímir við meiðsli í kálfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert