Symons stýrir Fulham áfram

Felix Magath var rekinn í september
Felix Magath var rekinn í september AFP

Fulham hefur gengið frá ráðningu á Kit Symons í stöðu knattspyrnustjóra en hann hefur gegnt starfinu frá því í september þegar Þjóðverjinn Felix Magath var látinn fara.

Fulham hefur unnið fimm leiki af níu undir stjórn Symons sem lengi lék í vörn liðsins á árum áður. Liðið er nú komið af fallsvæðinu í B-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert