Costa verður með á Brúnni

Diego Costa.
Diego Costa. AFP

Varnarmenn QPR geta farið að búa sig undir erfiðan dag á morgun því spænski framherjinn Diego Costa er orðinn heill heilsu og verður í liði Chelsea þegar það fær nýliðanna úr QPR í heimsókn.

Costa hefur misst af síðustu leikjum Chelsea-liðsins vegna meiðsla en hann hefur nú jafnað sig og er tilbúinn að reima á sig markaskóna. Costa hefur skorað 9 mörk í deildinni og er markahæstur ásamt Sergio Agüero.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert