Gylfi mætir Kompany á Etihad

Vincent Kompany hefur jafnað sig fljótt af meiðslum.
Vincent Kompany hefur jafnað sig fljótt af meiðslum. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er að vanda í byrjunarliði Swansea sem sækir Englandsmeistara Manchester City heim kl. 15 á Etihad-vellinum í Manchester í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Gylfi hefur átt fast sæti í byrjunarliði Swansea frá því að hann kom frá Tottenham og farið á kostum í vetur og lagt upp sjö mörk auk þess að skora tvö, í tíu leikjum.

Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, hefur jafnað sig af meiðslunum sem komu í veg fyrir að hann spilaði með Belgum gegn Íslandi í vináttulandsleik í síðustu viku.

Man. City: Hart, Zabaleta, Kompany, Demichelis, Clichy, Navas, Fernandinho, Toure, Nasri, Jovetic, Agüero.

Swansea: Fabianski, Rangel, Bartley, Williams (C), Taylor, Ki, Carroll, Sigurdsson, Dyer, Montero, Bony.

Byrjunarliðin í öllum leikjum dagsins má sjá í ENSKA BOLTANUM Í BEINNI þar sem fylgst er með gangi mála í allan dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert