Árangur Liverpool ekki verri síðan '92

Liverpool tapaði gegn Crystal Palace í dag, 3:1, eftir að …
Liverpool tapaði gegn Crystal Palace í dag, 3:1, eftir að hafa komist yfir snemma leiks. AFP

Liverpool tapaði í dag þriðja leik sínum í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið tapaði 3:1 fyrir Crystal Palace á útivelli.

Liverpool hefur aðeins unnið fjóra af 12 leikjum sínum í úrvalsdeildinni á þessum tíma og er í 12. sæti með 14 stig, heilum 18 stigum á eftir toppliði Chelsea, eftir að hafa hafnað í 2. sæti á síðustu leiktíð.

Frá stofnun úrvalsdeildarinnar árið 1992 hefur Liverpool aðeins einu sinni verið með færri stig eftir 12 umferðir, en það var einmitt árið 1992. Til samanburðar þá var liðið með 24 stig á sama tíma í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert