Frá keppni í átta vikur

Victor Moses í leik með Stoke gegn Newcastle.
Victor Moses í leik með Stoke gegn Newcastle. AFP

Victor Moses, sóknarmaður Stoke City, sem er þar í láni frá Chelsea, verður frá keppni næstu átta vikurnar eða svo vegna meiðsla í læri.

Mark Bowen, aðstoðarstjóri Stoke, staðfesti þetta við BBC í dag. Hann sagði að ekki lægi fyrir hvort hann yrði í endurhæfingu hjá Stoke eða Chelsea en félögin væru að ræða það sín á milli.

Moses, sem er landsliðsmaður Nígeríu og var mestan hluta síðasta tímabils í láni hjá Liverpool, hefur spilað 10 af 12 leikjum Stoke í úrvalsdeildinni í vetur og skorað eitt mark. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert