Bruce Grobbelaar, sem varði mark enska knattspyrnuliðsins Liverpool frá 1981 til 1994, segir að markvörðurinn Simon Mignolet sé stærsta vandamál liðsins í dag.
„Vandamálin í varnarleik Liverpool hurfu í skuggann á síðasta tímabili vegna þess hve mikið Luis Suárez og Daniel Sturridge skoruðu af mörkum. Mignolet er hinsvegar verri en Drakúla í markinu því hann er alltaf fastur á marklínunni. Drakúla kemur þó af og til uppúr kistunni!" sagði Grobbelaar í viðtali við BBC og bar því belgíska markvörðinn saman við vampíruna alræmdu.