Sanogo byrjar hjá Arsenal

Alexis Sánchez er í fremstu víglínu hjá Arsenal.
Alexis Sánchez er í fremstu víglínu hjá Arsenal. AFP

Byrjunarliðin í leik Arsenal og Dortmund eru klár. í Meistaradeildinni. Athygli vekur að Danny Welbeck leikmaður Arsenal er ekki í leikmannahópi Lundúnaliðsins en hann er meiddur. Yaya Sanogo er mættur í fremstu víglínu í dag ásamt Alexis Sánchez.

Þá er enginn Oliver Giroud í leikmannahópi Arsenal heldur þar sem hann er ekki löglegur með þeim á árinu í Meistaradeildinni, en hann var fljótari að ná sér af meiðslum en gert var ráð fyrir.

Byrjunarlið Arsenal: Martinez, Chambers, Mertesacker, Monreal, Gibbs, Arteta, Ramsey, Oxlade-Chamberlain, Alexis, Cazorla, Sanogo.

Byrjunarlið Dortmund: Weidenfeller; Piszczek, Subotic, Ginter, Schmelzer; Gündogan, Bender, Großkreutz; Aubameyang, Mkhitaryan, Immobile.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert