Getið hætt að hugsa um hann

Yannick Bolasie á fullri ferð í leik Crystal Palace og …
Yannick Bolasie á fullri ferð í leik Crystal Palace og Liverpool. AFP

Neil Warnock, knattspyrnustjóri Crystal Palace, segir að lið í ensku úrvalsdeildinni geti hætt að hugsa um að reyna að kaupa kongóska kantmanninn Yannick Bolasie í janúarmánuði.

Bolasie hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Palace í vetur. Hann hefur spilað alla tólf leiki liðsins og átti frábæran leik um síðustu helgi gegn Liverpool þar sem hann lagði upp tvö mörk í 3:1 sigri Palace.

„Hann fer hvergi í janúar, það er ekki möguleiki. Hann er gerður til þess að spila fyrir félag eins og Palace, svona félag, svona svið, svona stuðningsmenn. Spurningin hjá honum núna er hvort hann geti haldið áfram svona, við spilum þrjá leiki á viku um þessar mundir,"sagði Warnock á fréttamannafundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert