Lampard: Aguero í gæðaflokki með Messi og Ronaldo

Sergio Aguero
Sergio Aguero AFP

Frank Lampard, sem nú leikur með Manchester City, sparar ekki lofið til  handa Argentínumanninum Sergio Aguero sem skoraði þrennu fyrir City gegn Bayern Munchen í Meistaradeildinni í vikunni.

Aguero hefur auk þess verið í feiknaformi í ensku deildinni og Lampard segir hann vera í hæsta gæðaflokki. Spurður um hvort hann standist samanburð við Lionel Messi og Cristiano Ronaldo þá segir Lampard það mega til sanns vegar færa.

„Hvað getuna varðar þá myndi ég segja að hann sé í svipuðum gæðaflokki eftir að hafa fylgst með honum í návígi. Ef hann getur spilað í hverri viku eins og hann hefur gert undanfarið þá mun fólk tala um hann í sömu andrá og Messi og Ronaldo. Ég hef ekki spilað með þeim tveimur
og einungis fylgst með þeim úr fjarlægð en mér sýnist að Aguero sé í svipuðum gæðaflokki,“ er haft eftir Lampard í Lundúnablaðinu Evening Standard.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert