Keane hættur hjá Aston Villa

Roy Keane.
Roy Keane. AFP

Enska knattspyrnufélagið Aston Villa tilkynnti rétt í þessu að Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, væri hættur störfum hjá félaginu en hann var ráðinn þangað sem aðstoðarstjóri í júlí á þessu ári.

Keane hefur verið hægri hönd Pauls Lamberts knattspyrnustjóra, en jafnframt er hann aðstoðarþjálfari írska landsliðsins.

Í tilkynningu Aston Villa er nánari útskýringum lofað fljótlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert