Balotelli fékk eins leiks bann

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Mario Balotelli, sóknarmaður Liverpool, var í dag úrskurðaður í eins leiks bann og 25 þúsund punda sekt af enska knattspyrnusambandinu og auk þess þarf hann að mæta á námskeið.

Hann var kærður fyrir ummæli á Instagram en þau þóttu fela í sér kynþáttafordóma. Þar setti hann inn mynd af tölvufígúrunni Super Mario og með því textann: „... stekkur eins og svartur maður og grípur smáaura eins og gyðingur."

Balotelli hafnaði því á Twitter að um móðgandi ummæli væri að ræða, en baðst síðan afsökunar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert