Eiður og félagar fögnuðu sætum sigri

Eiður Smári Guðjohnsen fagnaði sigri í kvöld.
Eiður Smári Guðjohnsen fagnaði sigri í kvöld. Ljósmynd/twitter

Eiður Smári Guðjohnsen lék í kvöld sinn fyrsta leik í byrjunarliði fyrir Bolton á leiktíðinni þegar liðið vann góðan 1:0-útisigur á Millwall í ensku B-deildinni í knattspyrnu.

Bolton hefur þar með leikið sjö leiki í röð án þess að tapa og er komið upp í 14. sæti með 26 stig eftir 22 leiki, eftir að hafa byrjað leiktíðina afleitlega.

Eiður var í liði Bolton fram á 61. mínútu en var þá skipt af velli fyrir Liam Trotter. Darren Pratley skoraði eina mark leiksins sjö mínútum síðar. Millwall sótti stíft undir lok leiksins en tókst ekki að koma boltanum í netið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert