Fellaini veikur en Di María klár

Marouane Fellaini hefur stimplað sig inn sem byrjunarliðsmaður hjá Manchester …
Marouane Fellaini hefur stimplað sig inn sem byrjunarliðsmaður hjá Manchester United í vetur. AFP

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United greindi frá því á fréttamannafundi í dag að hugsanlega yrði Argentínumaðurinn Ángel di María í leikmannahópi liðsins á morgun í leiknum gegn Aston Villa, eftir að hafa verið frá keppni vegna meiðsla.

Di María hefur getað æft með United í vikunni en hann meiddist í leik gegn Hull undir lok síðasta mánaðar.

United verður hins vegar án Marouane Fellaini á morgun en belgíski miðjumaðurinn er veikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert