Hart með nýjan fimm ára samning

Joe Hart handsalar samninginn.
Joe Hart handsalar samninginn. Ljósmynd/twitter

Enski landsliðsmarkvörðurinn Joe Hart skrifaði í dag undir nýjan samning við Englandsmeistara Manchester City.

Samningur Hart við City gildir út leiktíðina 2018/19 en hann gekk í raðir félagsins árið 2006. Hann var í láni hjá Tanmere, Blackpool og Birmingham en hann hefur verið aðalmarkvörður Manchester-liðsins frá árinu 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert