Gylfir Þór Sigurðsson er ekki í leikmannahópi Swansea City sem mætir Hull City á útivelli í ensku úrvalsdeildinni klukkan 15.
Ekki liggur fyrir hvers vegna en Swansea hefur tilkynnt leikmannahópinn og þar er Gylfa ekki að finna. Gylfi er væntanlega meiddur eða með flensu því hann hefur verið fastamaður í liðinu allt keppnistímabilið.
Samkvæmt Twitter-síðu Swansea er um meiðsli í fæti að ræða.