Mourinho: Hazard mun skrifa undir

Eden Hazard hefur verið hjá Chelsea síðan 2012.
Eden Hazard hefur verið hjá Chelsea síðan 2012. AFP

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, fullyrti á blaðamannafundi í gær að Belginn Eden Hazard muni skrifa undir nýjan samning við Chelsea á næstunni. Hazard hefur leikið afar vel með Chelsea og talið er að félög á borð við Real Madrid og PSG séu tilbúin að kaupa hann fyrir háa fjárhæð. 

Talið er að Hazard standi til boða nýr fimm ára samningur hjá Chelsea þar sem vikulaun hans gætu verið í kringum 200 þúsund pund. „Hann mun skrifa undir. Ég hef ekki haft nokkrar áhyggjur af þessu eftir að ég ræddi við föður hans. Hann er ánægður með að vera áfram hjá Chelsea. Nú er þetta fyrst og fremst talnaleikur og ég er ánægður með að standa fyrir utan þær viðræður,“ sagði Mourinho í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert