Íslensku landsliðsmennirnir Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Kári Árnason voru allir á ferðinni í ensku B-deildinni í fótbolta í dag en liðum þeirra gekk misjafnlega.
Kári og samherjar hans í Rotherham fögnuðu 2:1 útisigri á Wigan og koma úrslitin töluvert á óvart.
Cardiff lenti 0:3 undir á heimavelli gegn Brentford en lagaði stöðuna í 2:3 áður en yfir lauk.
Charlton, lið Jóhanns Bergs Guðmundssonar, tapaði 2:0 fyrir Blackburn á útivelli.
Cardiff er í 11. sæti, Charlton í 12. og Rotherham í 18. sæti.