Sigurgöngu United lauk á Villa Park

Radamel Falcao fagnar marki sínu í dag.
Radamel Falcao fagnar marki sínu í dag. AFP

Manchester United tókst ekki að vinna sinn sjöunda leik í röð í ensku úrvalsdeildinni en liðið gerði í dag 1:1 jafntefli við Aston Villa í Birmingham. Charlie Austin skoraði þrennur þegar QPR vann WBA 3:2 eftir að hafa lent 0:2 undir. 

Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao fékk tækifæri í byrjunarliði United og skoraði jöfnunarmark liðsins snemma í síðari hálfleik en Belginn Christian Benteke kom Villa yfir með laglegu marki í fyrri hálfleik. 

Gylfi Þór Sigurðsson var ekki leikfær í dag vegna meiðsla en Swansea vann Hull á útivelli 1:0. 

Allt það helsta úr leikjum dagsins er að finna í ENSKI BOLTINN Í BEINNI hér á mbl.is. 

Úrslit dags­ins:

Manchester City - Crystal Palace 3:0

Ast­on Villa - Manchester United 1:1

Hull City - Sw­an­sea City 0:1

QPR - WBA 3:2

Sout­hampt­on - Evert­on 3:0

Totten­ham Hot­sp­ur - Burnley 2:1

West Ham - Leicester City 2:0

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert