Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal er að undirbúa 16 milljón punda tilboð í franska miðjumanninn Moussa Sissoko.
Fréttavefur Mirror greinir frá þessu en Sissoko hefur látið hafa eftir sér að hann vilji gjarnan spila með liði Arsenal en það hafi verið draumur hans á langan tíma.
Moussa Sissoko er 25 ára gamall sem kom til Newcastle í fyrra frá franska liðinu Toulouse.