Aston Villa áfrýjar brottvísun Agbonlahor

Lee Masen rekur Gabriel Agbonlahor af velli.
Lee Masen rekur Gabriel Agbonlahor af velli. AFP

Aston Villa hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem framherjinn Gabriel Agbonlahor fékk að líta í viðureign Aston Villa og Manchester United á laugardaginn.

Lee Mason rak Agbonlahor af velli þegar um 25 mínútur voru til leiksloka eftir viðskipti hans og Ashley Young. Ákvörðun Masons að reka Agbonlahor af velli þótti flestum afar harður dómur og líklegt er að aganefnd enska knattspyrnusambandsins verði við beiðni Aston Villa um að fá rauða spjaldið fellt niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert