„Manchester United tilheyrir fortíðinni“

Tom Cleverley
Tom Cleverley AFP

„Manchester United tilheyrir fortíðinni, mín framtíð er hjá Aston Villa. Öðru velti ég ekki fyrir mér,“ segir Tom Cleverley í samtali við The Telegraph. Svo virðist sem Aston Villa muni nýta sér ákvæði í lánssamningi sínum við United og kaupa Cleverley fyrir 7,5 milljónir punda í janúar.

„Ég er ánægður með að komast í burtu frá þeirri neikvæðni sem var í kringum mig hjá Manchester United,“ segir Cleverley meðal annars en hann mátti þola mikla gagnrýni hjá United, meðal annars á samfélagsmiðlunum.

Cleverley var lánaður til Villa í haust og líklega hefur hann leikið sinn síðasta leik fyrir United. Ef Villa nýtir ekki kaupréttinn þá er talið að Everton og Hull City séu bæði áhugasöm um að krækja í leikmanninn sem á að baki 13 landsleiki fyrir England.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert