Svekktir að fá mark á okkur svona snemma

Mark Hughes kemur skilaboðum áleiðis til sinna manna í kvöld.
Mark Hughes kemur skilaboðum áleiðis til sinna manna í kvöld. AFP

Ekki sá Mark Hughes knattspyrnustjóri Stoke sína menn vinna Chelsea á heimavelli annað árið í röð en Chelsea hrósaði 2:0 sigri á Britannia í kvöld.

„Við vorum mjög svekktir að fá á okkur mark svona snemma leiks. Þetta er eitthvað sem þú vilt forðast. En mér fannst við samt reyna okkar besta. Áður en Chelsea skoraði seinna markið settum við þá undir pressu en við mættum liði sem margir telja að vinni deildina á þessu tímabili,“ sagði Hughes eftir leikinn en hann lék á sínum tíma 123 leiki með Chelsea.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert