Hazard er tæpur

Eden Hazard í leiknum gegn Stoke á mánudaginn.
Eden Hazard í leiknum gegn Stoke á mánudaginn. AFP

Belginn Eden Hazard sem hefur farið á kostum með Chelsea á tímabilinu er tæpur fyrir leikinn gegn West Ham á Stamford Bridge á morgun, öðrum degi jóla.

Hazard fékk slæmt högg á fótinn í leiknum gegn Stoke á mánudaginn og ekki er ljóst hvort hann verði búinn að hrista meiðslin af sér í tæka tíð. Ef ekki er líklegt að Brasilíumaðurinn Oscar fylli hans skarð.

Chelsea er með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar en liðið hefur aðeins tapað einum leik, gegn Newcastle á St.James Park á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert