Takist Eiði Smára Guðjohnsen og samherjum í Bolton að slá Liverpool út úr ensku bikarkeppninni í knattspyrnu bíður þeirra útileikur gegn úrvalsdeildarliði Crystal Palace í sextán liða úrslitunum.
Dregið var til þeirra rétt í þessu. Öruggt er að a.m.k. eitt lið utan úrvalsdeildar kemst í átta liða úrslit því Derby og Reading drógust saman. Þá er eftir að útkljá nokkrar viðureignir í 4. umferðinni.
Arsenal fékk heimaleik gegn Middlesbrough, sem sló Manchester City eftirminnilega út á laugardaginn.
Bradford City sem lagði Chelsea á Stamford Bridge fær heimaleik gegn Sunderland eða Fulham.
Þessi lið drógust saman:
Crystal Palace - Liverpool eða Bolton
Arsenal - Middlesbrough
Aston Villa - Leicester
WBA - West Ham
Bradford City - Sunderland eða West Ham
Blackburn - Rochdale eða Stoke
Derby - Reading
Preston eða Sheffield United - Cambridge U. eða Manchester United