Bojan með slitið krossband

Bojan Krkic hefur leikið afar vel með Stoke í vetur.
Bojan Krkic hefur leikið afar vel með Stoke í vetur. AFP

Sóknarmaðurinn Bojan Krkic, sem verið hefur einn besti maður Stoke í ensku úrvalsdeildinni í vetur, er með slitið krossband í hné eins og óttast var eftir að hann meiddist í bikarleiknum gegn Rochdale í gærkvöld.

Bojan fór meiddur af velli eftir hálftíma leik og nú er ljóst að hann leikur ekki meira á þessu tímabili, og missir líklega af byrjun næsta tímabils einnig.

„Þetta er svakalega svekkjandi fyrir félagið en jafnvel enn frekar fyrir Bojan sjálfan því hann lét mikið til sín taka í deildinni og naut þess greinilega að spila fótbolta. Við óskum honum skjóts bata,“ sagði Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert