Yanga-Mbiwa kominn í eigu Roma

Mapou Yanga-Mbiwa í leik með Roma gegn Manchester City í …
Mapou Yanga-Mbiwa í leik með Roma gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu. AFP

Franski miðvörðurinn Mapou Yanga-Mbiwa er kominn í eigu ítalska knattspyrnufélagsins Roma eftir að hafa verið í láni hjá félaginu frá Newcastle síðan í haust.

Yanga-Mbiwa hefur leikið 20 leiki með Roma á tímabilinu og félagið gat þar með nýtt sér klásúlu í lánssamningnum við Newcastle. Enska félagið fær samtals 5,5 milljónir punda vegna vistaskipta Frakkans.

Yanga-Mbiwa er 25 ára gamall og kom til Newcastle frá Montpellier fyrir tveimur árum, fyrir 8,5 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert