Gabriel kominn til Arsenal

Gabriel Paulista er orðinn leikmaður Arsenal.
Gabriel Paulista er orðinn leikmaður Arsenal. Ljósmynd/Arsenal.com

Arsenal hefur fest kaup á miðverðinum Gabriel Paulista frá Villarreal á Spáni og er kaupverðið sagt nema 11,3 milljónum punda, jafnvirði 2,3 milljarða króna.

Hluti af kaupsamningnum er að Joel Campbell fer til Villarreal að láni frá Arsenal út leiktíðina.

Gabriel er 24 ára gamall Brasilíumaður. Hann hefur leikið með Villarreal síðustu tvær leiktíðir eftir að hafa komið frá Vitória í heimalandi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert