Enska knattspyrnusambandið hefur sektað José Mourinho knattspyrnustjóra Chelsea um 25 þúsund pund eða sem svarar rúmum 5 milljónum íslenskra króna.
Sektin er til komin vegna ummæla Mourinho um dómarann eftir viðureign sinna manna gegn Southampton þann 28. desember á síðasta ári. Mourinho taldi að ummæli sín við fjölmiðla eftir leikinn þar sem hann gagnrýndi dómara leiksins harðlega hefðu ekki verið óviðeigandi en aganefnd enska knattspyrnusambandsins var á öðru máli og sektaði Portúgalann.
Leik Southampton og Chelsea lyktaði með 1:1 jafntefli en Mourinho taldi að sitt lið hefði verið svikið um vítaspyrnu.