Ameobi til liðs við Crystal Palace

Shola Ameobi.
Shola Ameobi. AFP

Nígeríski framherjinn Shola Ameobi er genginn í raðir Crystal Palace og gildir samningur hans við Lundúnaliðið út leiktíðina.

Ameobi er 33 ára gamall, uppalinn hjá Newcastle en yfirgaf félagið í sumar eftir að hafa ekki fengið framlengingu á samningi sínum. Hann hélt þá til Tyrklands og lék með Gaziantep en er nú snúinn aftur í ensku úrvalsdeildina.

Hjá Palace hittir Ameobi fyrir fyrrum stjóra sinn hjá Newcastle, Alan Pardew sem nýlega yfirgaf Newcastle til að taka við stjórninni hjá Crystal Palace.

Þar með hefur Palace krækt í tvo leikmenn í dag en félagið keypti einnig miðjumanninn Jordon Mutch frá QPR og talið er að fyrir hann hafi verið greiddar 4,5 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert