Mancini vill frá Yaya Toure til Inter

Yaya Toure.
Yaya Toure. AFP

Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Inter Milan, fer ekki leynt með áhuga sinn á því að fá Yaya Toure til liðs við sig frá Manchester City. Mancini var einmitt við stjórnvölinn hjá City þegar félagið keypti Toure frá Barcelona fyrir 24 milljónir punda árið fyrir fjórum árum síðan.

„Yaya er á meðal sterkustu leikmanna í heimi og er enn í þeim hópi. Hann hefur spilað fyrir mörg félög og hefur verið í belgísku, spænsku og ensku deildinni. En Ítalía vantar í upptalninguna. Nú gæti verið rétti tíminn til að koma og reyna sig hér. Við erum að byggja upp lið. Á markaðnum eru leikmenn sem gætu breytt holningu liðsins og Yaya er einn þeirra,“ sagði Mancini í samtali við ítalskt dagblað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert