Fletcher í læknisskoðun hjá West Ham

Darren Fletcher.
Darren Fletcher. AFP

Skoski miðjumaðurinn Darren Fletcher leikmaður Manchester United er sagður vera í læknisskoðun hjá West Ham og standist hann hana mun Fletcher skrifa undir samning við Lundúnaliðið.

Louis van Gaal, stjóri United staðfesti á vikulegum fréttamannafundi í dag að Fletcher væri í viðræðum við West Ham en hann er þrítugur og rennur út af samningi við United eftir tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert