Villa krækti í Sinclair

Scott Sinclair með treyju Aston Villa í dag.
Scott Sinclair með treyju Aston Villa í dag. Ljósmynd/@AVFCOfficial

Enska knattspyrnufélagið Aston Villa hefur fengið kantmanninn Scott Sinclair lánaðan frá Manchester City út þetta tímabil en þetta var staðfest af Villa núna í hádeginu.

Sinclair er 25 ára gamall og hefur verið í röðum Manchester City frá 2012 en aðeins leikið 12 deildaleiki með liðinu. Hann var í láni hjá WBA hluta síðasta tímabils. Áður spilaði hann með Swansea og Chelsea, en var lánaður til margra liða á meðan hann var á mála hjá Chelsea, m.a.a Wigan og Birmingham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert