„Gerði meira á 20 mínútum en Balotelli allt tímabilið“

Daniel Sturridge fagnar marki sínu á Anfield í gær.
Daniel Sturridge fagnar marki sínu á Anfield í gær. AFP

Alan Shearer, fyrrverandi framherji enska landsliðsins og nú einn af sparkspekingum BBC, segir að Daniel Sturridge, framherji Liverpool, hafi gert meira á 20 mínútum en Ítalinn Mario Balotelli á öllu tímabilinu.

Sturridge lék með Liverpool að nýju eftir langa fjarveru og innsiglaði 2:0-sigur Liverpool gegn West Ham á Anfield í gær.

„Sturridge gerði meira á 20 mínútum en Mario Balotelli hefur gert á öllu tímabilinu. Fimm mánuðir eru langur tími að vera frá vegna meiðsla og ég veit það af eigin reynslu hvernig honum hefur liðið að stíga aftur inn á völlinn eftir svona langa fjarveru. Markið hans var frábært liðsmark. Fyrsta snerting Sturridge var frábær, hans önnur og boltinn í netinu,“ segir Shearer.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert