Palace safnar liði

Alan Pardew knattspyrnustjóri Crystal Palace.
Alan Pardew knattspyrnustjóri Crystal Palace. AFP

Crystal Palace undir stjórn Alans Pardews heldur áfram að safna liði. Í dag gekk félagið frá kaupum á senegalska bakverðinum Pape Souare.

Souare er 24 ára gamall og kemur til Palace frá franska liðinu Lille en hann lék með Senegal í Afríkukeppninni.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Lundúnaliðið fær til sín á skömmum tíma en hinir tveir voru Jordon Mutch og Shola Ameobi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert