Óvissa með Van Persie

Robin van Persie.
Robin van Persie. AFP

Hollendingurinn Robin van Persie gæti misst af næstu leikjum Manchester United en hann meiddist á ökkla undir lok leiksins gegn Swansea í gær og studdist hann við hækjur þegar hann yfirgaf Liberty leikvanginn.

Van Persie haltraði síðustu mínútur leiksins þar sem United hafði þegar notað alla varamenn sína en Hollendingurinn hefur verið óheppinn með meiðsli og hefur ekki náð sér á strik á þessu tímabili.

Meiðsli leikmannsins verða skoðuð betur í dag en United beið ósigur gegn Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum hans, 2:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert