„Erum á réttri leið

Rooney og félagar fagna sigrinum í dag.
Rooney og félagar fagna sigrinum í dag. AFP

„Það er frábært að skora en stigin þrjú eru mikilvægust,“ sagði Wayne Rooney fyrirliði Manchester United eftir sigurinn gegn Sunderland í dag.

Rooney sá um að tryggja sínum mönnum sigurinn á Old Trafford en hann skoraði bæði mörkin í seinni hálfleik.

„Við vissum að það yrði erfitt að brjóta Sunderland á bak aftur. Þeir vörðust vel en við vorum þolinmóðir. Mér fannst þetta góður leikur af okkar hálfu. Eftir að við urðum manni fleiri fengum við meira rými en við hefðum átt að vera búnir að skora áður en Sunderland missti manninn af velli. Vonandi tekst okkur að enda tímabilið við. Við erum á réttri leið,“ sagði Rooney.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert