Rooney setti met

Wayne Rooney fagnar öðru marki sínu.
Wayne Rooney fagnar öðru marki sínu. EPA

Wayne Rooney fyrirliði Manchester United setti met með mörkunum tveimur sem hann skoraði fyrir United í sigrinum gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Rooney er fyrsti leikmaðurinn sem skorar 10 mörk eða fleiri 11 tímabilið í röð í ensku úrvalsdeildinni en annað markið sem Rooney skoraði í dag var hans 10. í deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert