Crouch jafnaði metið hjá Shearer

Peter Crouch fagnar marki með Stoke.
Peter Crouch fagnar marki með Stoke. AFP

Framherjinn Peter Crouch í liði Stoke City komst í gær upp að hlið Alans Shearers yfir flest skoruð mörk með skalla í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Crouch kom inná sem varamaður og tryggði Stoke 1:0 sigur gegn Hull í gær. Framherjinn hávaxni skoraði markið með skalla og hann hefur þar með skorað 46 skallamörk í deildinni líkt og Alan Shearer. Þar á eftir kemur svo Les Ferdinand með 40 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert